55NC 150
IS
1. Kostir hitamælisins
Mælir á nokkrum sekúndum
Þessi nýstárlega innrauða tækni veitir möguleika á mælingu án
þess að snerta viðfangið. Þetta tryggir öruggar og hreinlegar
mælingar á nokkrum sekúndum.
Fjölþættir notkunarmöguleikar (margvíslegar mælingar)
Hitamælirinn veitir möguleika á margvíslegum mælingum frá
0-100,0 °C / 32,0-212,0 °F, sem þýðir að tækið má nota til að mæla
líkamshita eða til að mæla yfirborðshita, til dæmis eftirfarandi:
• Yfirborðshita mjólkur í barnapela
• Yfirborðshita baðvatns fyrir smábörn
• Umhverfishita
Nákvæmur og áreiðanlegur
Einstök samsetning nemans felur í sér háþróaðan innrauðan
skynjara sem tryggir að hver mæling sé nákvæm og áreiðanleg.
Þægilegur og auðveldur í notkun
• Notendavæn hönnun gerir hitamælinn þægilegan og
auðaveldan í notkun.
• Hitamælinn má jafnvel nota til að mæla hita sofandi barns án
þess að trufla það.
• Hitamælirinn er skjótvirkur og þess vegna hentugur til notkunar
hjá börnum.
Endurheimt niðurstaðna fjölda mælinga
Með því að stilla á minni geta notendur endurheimt niðurstöður
síðustu 30 mælinga með skrá yfir bæði tíma og dagsetningu sem
veitir möguleika á að fylgjast náið með hitabreytingum.
Öryggur og hreinlegur
• Engin bein snerting við húð.
• Engin hætta á glerbrotum eða inntöku kvikasilfurs.
• Fullkomlega öruggur til notkunar hjá börnum.
Sótthitaviðvörun
10 stutt hljóðmerki og rautt bakljós á LDC-skjánum gefur sjúklingi
til kynna að hann geti verið með hita sem samsvarar eða er hærri
en 37,5 °C.
2. Mikilvægar leiðbeiningar um öryggi
• Þetta tæki má eingöngu nota í þeim tilgangi sem lýst er í
þessum bæklingi. Framleiðandi ber enga ábyrgð á skemmdum
af völdum rangrar notkunar.
• Dýfðu tækinu aldrei í vatn eða annars konar vökva.
Vinsamlegast fylgdu leiðbeiningum í kaflanum «Þrif og
sótthreinsun» þegar tækið er þrifið.
• Notaðu tækið ekki ef þú heldur að það sé bilað eða ef þú tekur
eftir einhverju óvenjulegu.
• Aldrei má opna þetta tæki.
• Grundvallarlífeðlisfræðileg áhrif sem nefnast æðasamdráttur
geta komið fyrir á byrjunarstigi sótthita sem valda því að húðin
verður köld. Hitinn sem mælist með þessum hitamæli getur
þess vegna verið óvenjulega lágur.
• Ef niðurstaða mælingar er ekki í samræmi við líðan sjúklingsins
eða óvenjulega lág skaltu endurtaka mælinguna á 15 mínútna
fresti eða gera samanburðarmælingu með öðrum hitamæli sem
mælir kjarnhita.
• Í tækinu er viðkvæmur tæknibúnaður og því ber að sýna gætni
við notkun þess. Fylgdu þeim leiðbeiningum um geymslu og
notkun sem fram koma í kaflanum «Tæknilýsing».
• Gættu þess að börn handfjatli ekki tækið án eftirlits; sumir hlutar
þess eru það litlir að hægt er að gleypa þá.
• Verndaðu tækið gegn:
- miklum sveiflum í hitastigi
- höggum og falli
- mengun og ryki
- sólarljósi
- hita og kulda
•
Ef ekki á að nota tækið tímabundið skaltu taka rafhlöðurnar úr því.
Viðvörun: Notkun tækisins er ekki ætlað að koma í staðinn
fyrir að leita ráðgjafar hjá lækni. Tækið er EKKI vatnsþétt
dýfið því þess vegna ekki í vökva.
3. Hvernig hitamælirinn mælir hitastig
Þessi hitamælir mælir innrauða orku sem geislar frá enni og jafnframt
hlutum. Orkunni er safnað um linsu og breytt í hitastigsgildi.
Niðurstöður hitamælinga eru nákvæmastar ef miðað er á svæðið
fyrir ofan augabrún.
4. Stillingar á skjá og tákn
• Allir þættir sýndir 9: Ýttu á «KVEIKT/SLÖKKT» hnappinn 5
til að kveikja á tækinu; allir þættir eru sýndir í 1. sekúndu.
• Tilbúinn til mælingar AK: Þegar tækið er tilbúið til mælingar
mun «°C» eða «°F» táknið leiftra á meðan stillingartáknið (fyrir
líkama eða hlut) er sýnt á skjánum.
Commentaires sur ces manuels